Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Eimskips, hefur sagt upp hjá skipaflutningafélaginu. Hún hefur unnið þar í sex ár eða frá árinu 2006.

Heiðrún situr í stjórnum nokkurra fyrirtækja, er stjórnarformaður Norðlenska, varaformaður stjórnar Gildi lífeyrissjóðs og situr auk þess í stjórn Reiknistofu bankanna og Samtaka verslunar og þjónustu.