Heiður Hallfreðsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri Icelandair Saga Club, sem tilheyrir markaðs- og viðskiptaþróunardeild Icelandair.

Hóf Heiður störf hjá Icelandair fyrr á árinu sem vörustjóri Icelandair Saga Club, en hún er með BSc gráðu í viðskiptafræði og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík.

Áður starfaði hún sem verkefnastjóri hjá Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík. Heiður er gift Birki Guðlaugssyni og saman eiga þau tvær dætur.