Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júlímánuði, metinn á föstu verði, var 11,1% minni en í júlí 2010. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 4,3% miðað við sama tímabil 2010, sé hann metinn á föstu verði. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Afli í tonnum

Aflinn nam alls 103.531 tonnum í júlí 2011 samanborið við 116.942 tonn í júlí 2010. Botnfiskafli dróst saman um rúm 1.000 tonn samanborið við júlí 2010 og nam um 26.000 tonnum. Þar af var þorskaflinn rúm 8.800 tonn, sem er aukning um 63 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam tæpum 2.000 tonnum sem er um 1.500 tonnum minni afli en í júlí 2010. Karfaaflinn jókst um rúm 1.700 tonn samanborið við júlí 2010 og nam 4.500 tonnum. Rúm 5.100 tonn veiddust af ufsa sem er tæplega 300 tonnum minni afli en í júlí 2010. Um 3.100 tonn veiddust af öðrum botnfiskafla, sem er samdráttur um rúm 400 tonn frá júlí 2010. Rúmum 75.000 tonnum var landað af uppsjávarafla í júlí síðastliðnum samanborið við um 86.000 tonna afla í júlí 2010. Þar af var 21.300 tonnum landað af síld, sem er um 11.400 tonna samdráttur frá fyrra ári. Tæp 53.800 tonn veiddust af makríl samanborið við 53.200 tonn í júlí 2010. Flatfiskaflinn var rúm 1.200 tonn í júlí 2011 sem er rúmlega 900 tonnum minni afli en í júlí 2010. Skel- og krabbadýraafli nam um 1.100 tonnum samanborið við tæplega 1.500 tonna afla í júlí 2010.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum

Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2009. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.