Hagnaður Stoða fyrstu sex mánuði ársins 2007 nam 4.336 milljónum króna en nam 4.186 milljónum króna fyrir sama tímabil árið áður.

Rekstrartekjur fyrstu sex mánuði ársins 2007 námu 4.162 milljónum króna en námu 2.778 milljónum króna fyrir sama tímabil árið áður.

Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 170, 3 milljarða króna en námu 156,6 milljarða króna í árslok 2006.

Eigið fé félagsins í lok tímabilsins nam 34 milljörðum króna en þar af nam hlutafé 2,7 milljörðum króna. Eigið fé í árslok 2006 nam 22,7 milljörðum króna.

Eiginfjárhlutfall félagsins var 20%.

Helstu atburðir janúar - júní 2007:

Í febrúar gerði félagið samning um kaup á fasteignafélaginu Landsafli ehf. af Landsbankanum. Helstu eignir félagsins eru: Höfðabakki 9 og Suðurlandsbraut 34 í Reykjavík. Rekstur félagsins er hluti af samstæðureikningi félagsins frá yfirtökudegi sem var 1. mars 2007.

Í febrúar jók félagið hlutafé sitt um 522 millj. kr. og seldi til þriggja nýrra fjárfesta: Landsbanka Íslands, Fjárfestingafélagsins Máttar ehf. og SJ1 ehf.

Í mars seldi félagið allt hlutafé sitt í S fasteignum ehf. til Eignarhaldsfélagsins Fons hf. Helstu eignir félagsins eru bensínstöðvar Skeljungs hf. Rekstur S fasteigna var hluti af samstæðureikningi félagsins til 28. febrúar 2007.

Í júní tilkynnti félagið um fyrirætlan sína að leggja fram valfrjálst yfirtökutilboð til allra hluthafa danska félagsins Keops A/S. Yfirtökutilboð félagsins hljóðaði upp á DKK 24,0 á hlut eða samtals 4.337 milljónir danskra  eða 51 milljarð króna fyrir allt hlutafé Keops. Stjórn Keops hefur mælt með tilboðinu og er það stutt með áliti frá bæði Glitni banka og Carnegie bank.

Tilboðsfresturinn rennur út 31. ágúst 2007. Niðurstaða tilboðsins verður tilkynnt 3. september 2007.

Félagið er fasteignafélag sem sérhæfir sig í útleigu og rekstri atvinnuhúsnæðis. Fasteignir félagsins eru verslunarhúsnæði, skrifstofur, hótel og vörugeymslur og er fermetrafjöldinn yfir 648 þúsund. Fjöldi leigutaka er
rúmlega 1.000. Meðal stærstu leigutaka má nefna Haga hf., Magasin Du Nord, ILLUM, Flugleiðahótel, Fasteignir Ríkissjóðs, Gudme Raaschou Bank og Danke Bank. Nýtingarhlutfall fasteigna er um 97%. Horfur í rekstri félagsins eru góðar.