Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 149 milljarða króna á síðasta ári. Það nemur 9,9% af landsframleiðslu og 24,3% af tekjum.

Til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 13,5% af landsframleiðslu 2008, en jálvæð um 5,4% árið 2007. Án 192 milljarða króna skuldayfirtöku ríkissjóðs var tekjuhalli hins opinbera 8 milljarðar króna árið 2008.

Í frétt Hagstofunnar um útkomu Hagtíðinda um fjármál hins opinbera árið 2009 segir að óhagstæð þróun frá árinu 2008 skýrist fyrst og fremst af miklum samdrætti í hagkerfinu. Hagvöxtur hafi verið neikvæður um 6,8% á árinu 2009, útgjöld jukust vegna mikillar skuldsetningar og aukins atvinnuleysis.

Heildartekjur lækkuðu

Heildartekjur hins opinbera námu 614 milljörðum króna á síðasta ári og lækkuðu um rúmlega 39 milljarða króna á milli ára. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 40,9% samanborið við 44,2% árið 2008 og 47,9% árið 2007, en fara þarf aftur til ársins 1998 til finna lægra hlutfall af landsframleiðslu.

Útgjöld hins opinbera voru rúmlega 763 milljarðar króna árið 2009 og lækkuðu um 90 milljarða króna milli ára, eða úr 57,8% af landsframleiðslu 2008 í 50,9% 2009. Að 192 milljarða króna skuldayfirtöku ríkissjóðs 2008 undanskilinni hækkuðu útgjöld hins opinbera um 102 milljarða króna milli ára.

Hagstofan - Fjármál hins opinbera 2009