Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á að veita Eimskipafélaginu heimild til að leita nauðasamnings samkvæmt frumvarpi félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskipafélaginu en beiðni um nauðasamningsumleitana var lögð fram í gær.

Garðar Garðarsson hæstaréttarlögmaður var skipaður umsjónarmaður með nauðasamningsumleitunum félagsins.

Þá hefur Kauphöllin jafnframt orðið við beiðni félagsins um að taka hlutabréf þess úr viðskiptum.

Samkvæmt tilkynningunni hljóðar frumvarpið að nauðasamningi svo:

“Lánardrottnum sem fara með samningskröfur (“lánardrottnar”) er boðið að breyta kröfum sínum á hendur Eimskip í L1003 ehf. (sem verður breytt í Eimskipafélag Íslands ehf.) kt. 690409-0460, (“Nýja-Eimskip”) sem má jafna til að þeim sé boðin greiðsla á 11,9% krafna sinna.

Eimskip mun afhenda 54,1% af hlutafé Nýja Eimskips til lánardrottna, en það samsvarar greiðslu á 11,9% krafna þeirra. Afhendingin mun eiga sér stað svo fljótt sem verða má og eigi síðar en innan 30 daga frá því að nauðasamningur telst kominn á.

Engir vextir verða greiddir vegna krafna lánardrottna frá þeim degi sem frumvarp þetta telst komið á og þar til hlutafé Nýja Eimskips verður flutt til lánardrottna.

Trygging verður ekki veitt fyrir greiðslum samkvæmt framangreindu.”

Sjá nánar í tengdum fréttum hér að neðan.