Hildur Árnadóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Fjárstýringar Íslandsbanka. Hildur hefur mikla reynslu af fjármálum og rekstri fyrirtækja. Hún er viðskiptafræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og löggiltur endurskoðandi.

Hildur var áður endurskoðandi hjá KPMG og var meðeigandi þar. Þá var hún fjármálastjóri samstæðu Bakkavarar um tíma. Hún hefur setið í fjölda stjórna íslenskra félaga, m.a. hjá Skiptum, VÍS og Lýsingu.

Hildur mun m.a. bera ábyrgð á fjölmörgum verkefnum og er þar helst að nefna lausafjárstýringu, innlendri og erlendri fjármögnun, fjárfestatengslum og stýringu efnahagsreiknings.