Mikill hiti virðist hafa gripið um sig meðal bænda vegna afskipta Kaupfélags Skagfirðinga af gerð nýrra búvörusamninga sem nú eru í vinnslu. Fulltrúi kaupfélagsins í stjórn Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði skrifaði undir yfirlýsingu þar sem varað er við aðkomu annarra en bænda og ríkisins. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV .

Skagfirðingar vilja funda með þingmönnum Norðvesturkjördæmis vegna nýrra búvörusamninga og sendu Kaupfélag Skagfirðinga, félag kúabænda í Skagafirði og sveitarfélagið þingmönnum bréf þess efnis. Í frétt RÚV kemur þó fram að í fyrri útgáfu bréfsins, sem skrifað er á bréfsefni Kaupfélagsins og var aldrei sent út, hafi verið gengið lengra og þingmenn hvattir til að stöðva viðræður ríkis og bænda.

Jafnframt kemur fram að nafn Félags Sauðfjárbænda í Skagafirði hafi verið prentað undir fyrri útgáfuna þó félagið harðneiti þátttöku í bréfinu sem sent var þingmönnum. Stjórn félagsins hafi tilkynnt Kaupfélaginu að hún sæi sér ekki fært að skrifa undir.

Heimildir RÚV segja að talsverð ólga sé meðal bænda vegna aðkomu Kaupfélags Skagfirðinga að málinu, en samningaviðræður munu vera á lokametrunum. Kaupfélagið leggst t.a.m. gegn afnámi mjólkurkvóta sem er eitt af meginatriðum samninganna. Segir Sigurður Loftssson, formaður Landssambands kúabænda, að afskipti kaupfélagsins séu dálítið óvenjuleg.

Í gær birti stjórn Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði yfirlýsingu þar sem varað er við því að aðrir komi með beinum hætti að samningum en ríkið og bændur. Sá sem skrifar undir yfirlýsinguna er Rögnvaldur Ólafsson, bóndi í Skagafirði og fulltrúi Kaupfélags Skagfirðinga í stjórn samtakanna.