Hlutabréf hækkuðu í Asíu í dag í kjölfar hækkunar á olíu auk þess sem orkufyrirtæki hækkuðu nokkuð.

MSCI Kyrrahafs vísitalan hækkaði um 0,6% og í Japan hækkaði Nikkei vísitalan um 0,6% sömuleiðis.

Þá hækkaði Hang Seng vísitalan í Hong Kong um 0,4% og í Ástralíu hækkaði S&P/ASX 200 vísitalan um 0,5% en þar í landi hækkuðu olíu- og orkufyrirtæki nokkuð í dag.