Dow Jones vísitalan hækkaði örlítið í dag, en hækkun Coca-Cola ýtti henni upp fyrir núllið. Standard & Poor´s og Nasdaq lækkuðu hins vegar vegna væntinga um hækkun stýrivaxta.

DeCode lækkaði mikið á Bandaríkjamarkaði í dag, eða um 11,5% samkvæmt Bloomberg. Verð félagsins var við lokun 0,9 dalir á hlut.

Nasdaq vísitalan lækkaði í dag um 0,43%. Dow Jones hækkaði örlítið, um 0,04% og Standard & Poor´s lækkaði um 0,28%.

Olíuverð lækkaði í dag um 1,9% og kostar tunnan nú 131,76 dali.