Kauphöllin hefur ákveðið að færa hlutabréf Føroya Banki P/F á Athugunarlista frá og með deginum í dag með tilvísun í tilkynningu frá Føroya Banki í gær varðandi áætlanir félagsins um að gera tilboð í hlut af Fionia Bank.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.