Hlutabréfamarkaðir hækkuðu í Evrópu í dag en að sögn Reuters fréttastofunnar voru það helst orku, lyfja og tæknifyrirtæki sem leiddu hækkanir dagsins. FTSE 300 vísitalan, sem mælir helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu, hækkaði um 1,5% en nú í lok árs hefur vísitalan engu að síður lækkað um 46% á árinu. Í Lundúnum hækkaði FTSE 100 vísitalan um 1,7%, í Amsterdam hækkaði AEX vísitalan um 2,4% og í Frankfurt hækkaði DAX vísitalan um 2,2%. Í París hækkaði CAC 40 vísitalan um 2,8% og í Sviss hækkaði SMI vísitalan um 1,3%. Í Kaupmannahöfn hækkaði OMXC vísitalan um 0,6%, í Stokkhólmi hækkaði OMXS vísitalan um 1,2% og í Osló hækkaði OBX vísitalan um 2,5%.