Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,4% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 í 4.291 stigi.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er lítil eða aðeins um 260 milljónir. Þar af eru tæplega 50 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], rúmlega 45 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ] og annað eins með bréf í Glitni [ GLB ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur styrkst í morgun um 0,3% en gengisvísitalan er nú 158,6 stig.