Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,5% það sem af er degi og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:50 í 4.427 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins eitt félag, Bakkavör [ BAKK ] hefur hækkað það sem af er degi.

Velta með hlutabréf er um 2,8 milljarðar en þar af eru um 2,2% milljarðar með bréf í Landsbankanum [ LAIS ].

Krónan hefur veikst um 1,3% það sem af er degi.