Hlutabréf hækkuðu í Evrópu í dag. FTSEurofirst 300 vísitalan hækkaði um 0,6% og hefur ekki verið hærri í tvo mánuði að sögn Reuters fréttastofunnar.

Það voru helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu hækkanir dagsins. Svissnesku bankarnir UBS og Credit Suisse hækkuðum til að mynda um 3,2% og 2,7%.

Í Lundúnum stóð FTSE 100 vísitalan í stað en í Frankfurt hækkaði DAX vísitalan um 0,4%. Þá hækkaði AEX vísitalan í Amsterdam um 0,9% og CAC 40 vísitalan í París um 0,7%.

Í Kaupmannahöfn lækkaði OMXC vísitalan aftur á móti um  0,6% en í Osló hækkaði OBX vísitalan um 2,5%.