Þegar hið breska easyJet hóf flug til Íslands fyrir tveimur árum síðan stóðu farþegar hér á landi undir helmingi pantana. Fimm mánuðum síðar var hlutfall farþega sem hefja ferðalagið á Keflavíkurflugvelli komið niður í þriðjung. Í dag er það aðeins ellefu prósent samkvæmt upplýsingum frá easyJet, að því er segir í frétt Túrista .

Á sama tíma hefur félagið margfaldað umsvif sín hér á landi og stendur nú fyrir um tíundu hverji brottför frá Keflavíkurflugvelli samkvæmt talningu Túrista. Í svari easyJet kemur fram að íslenskum farþegum hafi ekki fjölgað á þessum tíma og því hafi hlutdeild Íslendinga lækkað. Langstærsti hluti farþega Easy Jet eru því erlendir ferðamenn.