Hluthafi sem óskaði eftir hluthafafundi í Opin Kerfi Group hf. til að fá kjörna nýja stjórn að félaginu hefur dregið þá ósk til baka og beðið um að hluthafafundinum verði aflýst. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að stjórn Opin Kerfi Group hf. hefur ákveðið að því sé ekki lengur tilefni til að halda slíkan fund og afboðar hér með hluthafafund í félaginu sem vera átti í dag.