Stjórn Glitnis Banka hf. hefur ákveðið að boða til hluthafafundar í félaginu þann 11. október, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Þar verður tekið til umræðu kaup ríkisins á 75% hlut í Glitni með hlutafjáraukningu.

Fundurinn fer fram í Háskólabíói, stóra sal, Hagatorgi Reykjavík og hefst kl. 17:00