Hólmfríður Anna Martel Ólafsdóttir hefur gengið til liðs við Capacent sem ráðgjafi á sviði tölfræðilegra greininga (Analytics).

Hólmfríður er eð BA-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og MSc í aðferðafræði frá London School of Economics. Hólmfríður hefur auk þess mikla reynslu á þessu sviði en hún hefur starfað tölfræðilega greiningu gagna hjá markaðsrannsókna- og ráðgjafafyrirtækjum í London í rúman áratug.

„Capacent hefur verið brautryðjandi á Íslandi á sviði tölfræðilegra greininga og nær sú ráðgjöf til þriggja þátta í starfsemi fyrirtækja og stofnana, þ.e. neytendahegðun (Customer Analytics), greiningum til að bæta rekstrarákvarðanir (Operational Analytics) og greiningum gegn svikum (Fraud Analytics). Við höfum til dæmis þróað og innleitt greiningarlíkön sem veitt hafa stjórnendum fyrirtækja skýrari sýn á viðskiptavinahópa og bætt ákvarðanir. Við sjáum mikla þróun og vaxandi þörf fyrir ráðgjöf og sérþekkingu á þessu sviði,“ segir Ingvi Þór Elliðason, framkvæmdastjóri Capacent.