Háskólinn í Reykjavík mun hefja kennslu á nýrri námsbraut í hagfræði frá og með næsta hausti en þegar hefur verið opnað fyrir umsóknir í námið. Tvær námsleiðir verða í boði, annars vegar BSc-gráða í hagfræði og fjármálum og hins vegar BSc-gráða í hagfræði og stjórnun. Meðal kennara við deildina verða dr. Friðrik Már Baldursson, prófessor; dr. Katrín Ólafsdóttir, lektor, dr. Axel Hall, lektor.

Í fyrstu mun vera boðið upp á nám í hagfræði til BSc gráðu og lögð verður áhersla á að nemendur öðlist sterkan fræðilegan grunn í hagfræði samhliða því að þeir fái haldgóða og hagnýta færni í að beita sinni þekkingu segir í tilkynningu um námsbrautina.

„Það er þörf á aukinni þekkingu á sviði hagfræði í atvinnulífinu,“ segir Þóranna Jónsdóttir, forseti viðskiptadeildar HR. „Deildin hefur á að skipa mjög færum sérfræðingum á sviði hagfræði sem hafa áratuga reynslu af kennslu, rannsóknum og störfum fyrir atvinnulíf og samfélag. Stofnun nýrrar námsbrautar í hagfræði hefur verið í undirbúningi í tvö ár og er eðlilegt framhald af uppbyggingu kennslu í viðskiptatengdum greinum við háskólann.“

Ari Kristinn Jónsson, rektor HR:

„Það er okkur mikið ánægjuefni að bjóða upp á hagnýtt og krefjandi nám í hagfræði við Háskólann í Reykjavík. Hlutverk okkar er að styrkja samkeppnishæfni og lífsgæði á Íslandi og skapa nemendum okkar tækifæri í atvinnulífi og samfélagi. Liður í því er að stuðla að góðri menntun í viðskiptum, sem snúast m.a. um fjármál, efnahagsmál, mannlega hegðun og fleira. Hagfræðin er mikilvæg viðbót við námsframboð í viðskiptafræði og sálfræði við viðskiptadeild HR og með nýju námsbrautinni bjóðum við nemendum okkar nú upp á nám sem tengist flestum hliðum viðskiptalífsins.“