Alls sóttu rúmlega 2.200 manns um skólavist í Háskólanum í Reykjavík (HR) fyrir næsta skólaár. Aldrei fyrr hafa jafnmargir sóst eftir því að stunda nám við skólann, en í fyrra voru umsækjendur í fyrsta sinn í sögu skólans yfir 2000. Fjölgunin í ár miðað við í fyrra nemur rúmum 10%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá HR.

Þá kemur fram að rétt um 40% umsækjenda hljóta inngöngu, en þessa daga er unnið hörðum höndum að því að koma svörum til allra umsækjenda.

Umsækjendum fjölgaði í allar deildir skólans nema viðskiptadeild, þar er nær sami fjöldi umsókna og á síðasta ári eða tæplega 800.

Mest fjölgaði umsóknum í tölvunarfræðideild, eða um rúm 30%. Í kennslufræði- og lýðheilsudeild fjölgaði umsóknum um tæp 30%, í tækni- og verkfræðideild og í lagadeild fjölgaði umsóknum um 13 og 10%. Þá má geta þess að umsóknum um nám á frumgreinasvið skólans fjölgaði gríðarlega, eða um 35%.

Af einstökum námsbrautum má nefna að umsóknum um nám í íþróttafræði fjölgaði um 54%, í tölvunarfræði um 42% og í heilbrigðisverkfræði um 42%. Enn fremur má greina mjög aukinn áhuga á námi í stærðfræði, vél- og orkutæknifræði og hátækniverkfræði.