Hugbúnaðarhúsið Sendiráðið hefur ráðið Hrafn Ingvarsson sem nýjan framkvæmdarstjóra fyrirtækisins. Hrafn tekur við starfinu af Orra Guðjónssyni sem er annar af stofnendum Sendiráðsins. Hrafn gengdi áður stöðu framkvæmdastjóra vörusviðs hjá Novomatic Lottery Solutions frá árinu 2016 en fyrir það vann hann að hugbúnaðarþróun hjá Íslandspósti.

Hrafn er með B.Sc. gráðu í tölvunarfræði og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hann er einn af upphafsaðilum Product Tank á Íslandi, sem er vettvangur fyrir fagaðila til að deila þekkingu um vöruþróun í hugbúnaðargerð.

„Undanfarin ár hafa hraðar stafrænar breytingar átt sér stað sem hefur skapað mörg tækifæri fyrir fyrirtæki eins og okkur og verður spennandi að leiða Sendiráðið í þeirri vegferð. Sendiráðið er með góðan grunn og frábæra starfsmenn með mikla tækniþekkingu sem eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni. Við höfum vaxið mikið að undanförnu og því höfum við bætt við starfsfólki til að geta tekið að okkur fleiri verkefni og þannig stækkað viðskiptavinahóp okkar. Við lítum því á það sem spennandi áskorun,“ er haft eftir Hrafni í fréttatilkynningu.