Franz Páll Sigurðsson
Franz Páll Sigurðsson
Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri Markaða og fjárstýringar hjá Landsbankanum, tekur við stjórn Fjármála bankans í stað Frans Páls Sigurðssonar sem lætur af störfum í dag. Í kjölfar mannabreytinganna verður skipulag bankans tekið til skoðunar.

Viðskiptablaðið greindi frá starfslokum Frans í lok júlí en hann lætur af störfum að eigin ósk.

Fram kemur í tilkynningu frá Landsbankanum í dag að Frans hóf störf hjá bankanum haustið 2010 þegar viðamiklar breytingar voru gerðar á framkvæmdastjórn bankans og átta nýir framkvæmdastjórar voru ráðnir.