Hæstiréttur var rétt í þessu að staðfesta dóm héraðsdóms í Baugsmálinu. Það er sá hluti málsins er laut að sex ákæruliðum af þeim 40 sem upphaflega ákæran í Baugsmálinu tók til og voru þau Jón Ásgeir Jóhannesson, Kristín Jóhannesdóttir og endurskoðendur fyrirtækisins sýknuð af öllum ákærum.

Ákæruatriðin lutu annars vegar að meintum lögbrotum við gerð ársreikninga Baugs á árunum 1998?2001 og hins vegar við innflutning á tveimur bílum til landsins á árunum 1999 og 2000.

Dómurinn er skipaður fimm hæstaréttardómurum, þeim Markúsi Sigurbjörnssyni, Gunnlaugi Claessen, Ingibjörgu Benediktsdóttur, Árna Kolbeinssyni og Hjördísi Hákonardóttur.