Lyst ehf. mun um mánaðamótin hætta samstarfi við McDonald’s skyndibitakeðjuna, en fyrirtækið rekur þrjá veitingastaði samkvæmt sérleyfi frá McDonald’s. Rekstri staðanna verður haldið áfram undir nafninu Metro segir í tilkynningu.

Metro-staðirnir munu áfram bjóða svipaðar vörur og áþekkan matseðil á sambærilegu verði segir í tilkynningu. Breytingin er gerð í samkomulagi við McDonald’s.

Í tilkynningu segir að ástæðan fyrir breytingunni er erfitt efnahagsumhverfi hér á landi. Þar ræður hrun gengis íslensku krónunnar mestu. Lyst ehf. hefur undanfarin ár keypt flest hráefni í McDonald’s réttina, kjöt, ost, grænmeti  og önnur aðföng af erlendum birgjum, samkvæmt kröfum og stöðlum McDonald’s.

Gengishrunið, ásamt háum tollum á innfluttar búvörur, hefur tvöfaldað hráefniskostnað fyrirtækisins og gert afkomuna erfiða. Aðilar hafa ekki trú á að efnahagsaðstæður hér batni nægilega til að rekstur veitingastaða undir merkjum McDonald’s verði arðbær til lengri tíma.

Viðbrögð Lystar ehf. við þessum breytingum eru að halda rekstri veitingastaðanna á Suðurlandsbraut, í Kringlunni og á Smáratorgi áfram undir nýju nafni. Samið hefur verið við innlenda birgja um að sjá Metro-stöðunum fyrir besta fáanlega hráefni og máltíðir Metro verða í umbúðum sem framleiddar eru á Íslandi. Með því að beina  viðskiptum til innlendra framleiðenda mun takast að lækka hráefniskostnað verulega.

10-15 ný störf verða til hjá innlendum framleiðendum vegna breytingarinnar. Nautakjöt, kjúklingur, mjólkurvörur, sósur, ís,  brauð, grænmeti og umbúðir allt frá innlendum framleiðendum.

Svipaður matseðill

Viðskiptavinir Metro munu frá og með sunnudeginum 1. nóvember geta gengið að svipuðum matseðli og var á McDonald´s stöðunum. Barnaboxin með  skemmtilegum leikföngum verða á sínum stað. Áfram er lagt upp úr ströngu gæðaeftirliti, hraða í þjónustu og lágu verði. Þar verður byggt á reynslunni, sem Lyst ehf. hefur af löngu og farsælu samstarfi við McDonald’s. Strax á fyrstu vikunum verða viðskiptavinir einnig varir við nýjungar, t.d. aukna áherslu á salöt og annað heilsufæði.

„Við þökkum McDonald’s fyrir gott samstarf á liðnum árum og í undirbúningi þessarar breytingar,“ segir Jón Garðar Ögmundsson, eigandi Lystar ehf. í tilkynningu. „ Með íslensku vörumerki á skyndibitamarkaðnum við núverandi aðstæður höfum við fulla trú á framtíðinni, enda hefur aldrei verið meira að gera hjá okkur en undanfarna mánuði. Við ætlum að halda okkar striki með því að færa innkaup okkar til innlendra framleiðanda og byggja áfram á þeirri löngu reynslu, sem við höfum af samstarfinu við fremstu skyndibitakeðju í heimi. Þannig ætlum við að halda okkar forystu á markaðnum.“

Lyst ehf. opnaði fyrsta McDonald’s staðinn á Íslandi 9. september 1993. Veitingastaðirnir eru nú þrír, við Suðurlandsbraut, í Kringlunni og á Smáratorgi. Jón Garðar Ögmundsson hefur verið eigandi Lystar frá 2004. Starfsmenn fyrirtækisins eru 90 og verður engum sagt upp vegna breytinganna. Reksturinn heldur áfram á sömu kennitölu þrátt fyrir breytt vörumerki. Afgreiðslutímar verða þeir sömu og áður.