Gylfi Árnason, útibússtjóri Kaupþings í Borgarnesi, hefur sagt upp störfum hjá bankanum og mun hefja störf sem fjármálastjóri Loftorku í lok mánaðarins.

„Þetta var ákveðið um miðjan júlí og þá gekk ég frá uppsögn minni hjá Kaupþingi þegar mér bauðst þetta starf hjá Loftorku og mig langaði að breyta til. Þá féllst ég á að starfa hjá Kaupþingi út ágúst. Ég vil taka fram að þessi vistaskipti mín eru algjörlega óháð fyrirhuguð kaupum Kaupþings í Sparisjóði Mýrasýslu,” hefur Skessuhorn eftir Gylfa um málið.