Stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, NSA, hefur ráðið Huld Magnúsdóttur framkvæmdastjóra sjóðsins. Hún tekur við af Helgu Valfells sem lét af starfi framkvæmdastjóra í janúar sl. eftir farsælt starf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá NSA.

„Huld er reyndur stjórnandi með fjölbreytta starfsreynslu úr einkageiranum og hjá hinu opinbera. Hún hefur frá árinu 2009 starfað sem forstjóri þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda og sjónskerta. Þá var hún settur forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins 2015-2016. Á árabilinu 1993-2008 starfaði Huld hjá hátæknifyrirtækinu Össuri hér á landi og erlendis við ýmis stjórnunarstörf, meðal annars sem framkvæmdastjóri yfir framleiðslu og dreifingu fyrir Norður-Ameríku, viðskiptastjóri, kynningarstjóri og gæðastjóri. Meðfram störfum sínum hjá Össuri var Huld verkefnastjóri í Bosníu-Herzegóvínu í þróunarverkefni í samvinnu við utanríkisráðuneytið 1995-2003,“ segir í tilkynningunni.

Huld er með BA gráðu í alþjóðlegum samskiptum frá University of Sussex í Bretlandi, MIB í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum á Bifröst og diplóma í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.

Almar Guðmundsson, stjórnarformaður NSA, segir mikinn feng fyrir NSA að fá Huld til að stýra sjóðnum. „Huld hefur viðamikla þekkingu á viðskiptum og reynslu af nýsköpun, stefnumótun og alþjóðastarfi eftir að hafa unnið víða í heiminum. Hún hefur þá reynslu sem við sækjumst eftir nú þegar næstu skref sjóðsins verða mörkuð.“

Alls bárust 57 umsóknir um starfið en Capacent hafði umsjón með ráðningarferlinu. Huld tekur við starfi framkvæmdastjóra frá og með 1. maí.