Um 100 starfsmenn Íslandsbanka koma að endurútreikningi á húsnæðislánum einstaklinga í erlendri mynt með veði í eigin íbúðarhúsnæði í þeim tilgangi að breyta þeim í húsnæðislán í íslenskum krónum. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Íslandsbanka munu flest umrædd lán lækka á bilinu 25-40% við þessa breytingu. Lækkunin veltur á myntsamsetningu lánsins, hvenær það var tekið og hversu mikið hefur verið greitt af því.

Í tilkynningu frá Íslands segir:

Ef höfuðstólslækkun erlendra lána felur í sér betri niðurstöðu fyrir lántakendur en endurútreikningur lánsins geta þeir áfram valið það úrræði.  Þeir viðskiptavinir bankans sem hafa nú þegar valið höfuðstólslækkun munu geta séð stöðuna á láninu miðað við endurútreikninginn. Ef sú niðurstaða verður hagstæðari en höfuðstólslækkunin geta viðskiptavinir valið endurútreikninginn.

Stefnt er að því að fyrsti hluti endurreiknaðra lána verði birtur í heimabanka lántakenda eigi síðar en 25. febrúar næstkomandi samkvæmt tilkynningu Íslandsbanka. Endurútreikningurinn mun einnig ná til húsnæðislána einstaklinga sem hafa verið yfirtekin eða uppgreidd. Tilkynnt verður síðar hvenær sá útreikningur liggur fyrir. Þar til endurútreikningur liggur fyrir stendur viðskiptavinum áfram til boða að greiða 5.000 kr. mánaðarlega af hverri upphaflegri milljón lánsins. Allar greiðslur verða teknar með inn í endurútreikning lánsins.