Húsnæðisverð hefur hækkað þrefalt hraðar en laun undanfarna tólf mánuði. Að mati hagdeildar Íbúðalánasjóðs getur sú þróun ekki haldið áfram lengi. Verð á fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um alls 21,4% frá júní 2016 en á sama tíma hækkuðu laun aðeins um 7,3%. Að sögn Unu Jónsdóttur, hagfræðings hjá hagdeild Íbúðalánasjóðs, er æskilegt að þessar tvær stærðir haldist í hendur. Það var tilfellið síðasta sumar, þegar bæði verð á fjölbýli og laun í landinu höfðu hækkað um rúm 12% milli ára að því er kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði.

Síðasta árið hefur fasteignaverð aftur á móti tekið hratt fram úr þróun launa. Staðan er því umtalsvert verri í dag en fyrir ári síðan, sér í lagi fyrir þá sem eru að reyna komast inn á fasteignamarkaðinn. Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í síðustu viku var frá í síðustu viku hefur þó örlítil breyting orðið á þessari þróun núna allra síðustu mánuði en í júní lækkaði verð á fjölbýli um 0,2% frá fyrri mánuði sem var fyrsta lækkunin sem mælist í tvö ár. Á þessum sama tíma jókst vísitala launa um 1% milli mánaða og gæti því þróunin verið í þá átt að þessar stærðir færist nú aftur nær hvor annarri með hægari vexti fasteignaverðs.

Húsnæðisverð
Húsnæðisverð