Að sögn Friðriks Steins Kristjánssonar, stjórnarformanns Invent Farma ehf., hyggst fyrirtækið hefja lyfjaþróunarstarfsemi hér á landi innan tveggja ára. Félagið hefur fengið vilyrði fyrir lóð í Vatnsmýrinni í grennd við væntanlegt aðsetur Háskólans í Reykjavík. Ef það gengur eftir er hugsanlegt að hefja framkvæmdir við húsið að ári liðnu og hefja starfsemi þar eftir tvö ár. Að sögn Friðriks myndi slík tímasetning henta þeim ágætlega miðað við þarfir þeirra í dag.

Gert er ráð fyrir að 30 til 40 starfsmenn vinni þarna við lyfjaþróun og að í upphafi verði reist 2.000 fermetra hús með möguleikum á stækkun upp í 3.000 fermetra. Unnið er að kostnaðaráætlun vegna verksins og sagðist Friðrik ekki treysta sér til að segja til um hver hann yrði að svo stöddu.

Fyrirtækið Invent Farma rekur tvær lyfjaverksmiðjur  í Barcelóna, sem keyptar voru fyrr á árinu. Inke sérhæfir sig í þróun og framleiðslu virkra lyfjaefna (API). Helstu markaðir félagsins eru í Evrópu, Bandaríkjunum og í Japan. Laboratorios Lesvi sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á samheitalyfjum, bæði undir eigin vörumerkjum til sölu á Spáni og undir vörumerkjun annarra. 300 starfsmenn vinna hjá fyrirtækjunum þar af  60 á rannsóknar- og þróunardeild félagsins.

"Við hyggjumst byggja á því þróunarstarfi sem er á Spáni í dag," sagði Friðrik í samtali við Viðskiptablaðið og bætti við að fyrirtækið hefði ýmis önnur áform á prjónunum. Þess má geta að starfsemi sem þessi er unnin hjá Actavis í dag og var áður hjá Omega Farma sem Friðrik veitti forstöðu á sínum tíma. Ætlunin er að þróa samheitalyf sem ekki er unnt að þróa með sama hætti á Spáni vegna einkaleyfalaga. Það gerir Ísland að ákjósanlegu landi fyrir þróunarstarf af þessu tagi.