Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 1,47% í byrjun dags og stendur nú í 5.115 stigum.

Þá hefur Exista [ EXISTA ] hækkað mest fyrirtækja eða um 5,7%. FL Group [ FL ] hefur hækkað um 3,5% og Bakkavör [ BAKK ] um 3,4%.

Aðeins tvö fyrirtæki hafa lækkað. Föroya Banki [ FO-BANK ] hefur lækkað um 2% og Össur [ OSSR ] um 0,75%.

Velta með hlutabréf er 2,3 milljarðar.