Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,8% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni kl. 10 í morgun og stendur nú, kl. 10:50 í 4.548 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er þegar orðin um 2,1 milljarður en þar af eru þó rúmlega 1,9 milljarðar með bréf í Kaupþing.

Krónan hefur styrkst um 0,3% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun og stendur gengisvísitalan í 161,2 stigum.