Mesta hækkun dagsins var á bréfum Atlantic Petroleum - dagslokagengi fyrirtæksins stóð í 1.100 sem er 10% hækkun.

Mosaic Fashions hækkaði um 3.64% og endaði í 17.10, Alfesca hækkaði um 1.85% og endaði í 5.52.

Nokkur hækkun varð á bréfum Landsbankans (0,26%) og Kaupþings (0,62%), en mest velta var með bréf í Glitni eða 9,83 milljarðar.

Mest lækkun varð á bréfum í Össuri hf. eða 0,94% og enduðu bréf félagsins á genginu 105. Nokkur lækkun varð á bréfum í Föroya Bank, 0,86% og bréf í Straumi-Burðarási lækkuðu um tæplega hálft prósent. 365 hélt áfram að lækka og var dagslokagengi bréfa félagsins tæplega 3.43 sem er 0,87% lækkun frá dagslokagengi föstudagsins síðastliðins.