Úrvalsvísitalan lækkaði í dag um 0,5% og stóð við lok markaða í 3.044 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,2% í gær og hélt áfram að lækka við opnun markaða í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en ekkert félag hækkaði í dag.

Hins vegar lækkuðu færeysku félögin í Kauphöllinni nokkuð. Þannig lækkaði Eik banki um 24%, Century Aluminum um 17,6% og Atlantic Patroleum um 11,3%.

Í gær voru viðskipti með fjármálafyrirtæki stöðvuð af fjármálaeftirlitinu og hafa enn ekki verið leyfð á ný þannig að velta með hlutabréf var í dag lítil eða 350 milljónir króna.

Þar af voru tæpar 125 milljónir króna með bréf í Marel og tæpar 114 milljónir með bréf í Össur.

Þá er velta fyrir tæpar 88 milljónir með bréf í Bakkavör en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.