Úrvalsvísitalan (OMXI6) hækkaði um 2,6% í dag og stóð við lok markaða í 952 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan hækkaði um 3% fyrir helgi en hefur hækkað í mestallan dag. Mestu munar þar um 14,4% hækkun Straums.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hækkaði um 1,4% og stendur nú í 322 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en sem fyrr segir leiddi Straumur hækkanir. Aðeins sex félög hreyfðust í dag.

Velta með hlutabréf var um 340 milljónir króna en þar af voru rúmar 158 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá var velta fyrir tæpar 144 milljónir króna með bréf í Össur og rúmar 35,5 milljónir króna með bréf í Marel.

Velta með skuldabréf nam í dag tæpum 9 milljörðum króna en mesta veltan var með bréf í flokki HFF0 150914 eða um 1,8 milljarðar króna.