Úrvalsvísitalan stóð í stað í dag. Gengi krónu hefur veikst um 0,75% það sem af er degi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis, en gjaldeyrismarkaður er enn opinn.

Veltan á hlutabréfamarkaði nemur 3,8 milljörðum króna. Það skýrist að mestu af því að framvirkur samningur með bréf Kaupþings fyrir 1,2 milljarða króna á genginu 1.160 rann út.   Auk þess rann út sambærilegur samningur fyrir 580 milljónir króna. Markaðsgengi Kaupþings er 780 við lok markaðar.

Danska hlutabréfavísitalan OMXC hefur lækkað um 1%, norska hlutabréfavísitalan OBX hefur lækkað um 2,4% og sænska hlutabréfavísitalan hefur lækkað um 0,7%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.