Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,99% og er 7.654 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi.

Bakkavör Group hækkaði um 2,54%, Landsbankinn hækkaði um 2,18%, Exista hækkaði um 2,1%, Mosaic Fashions hækkaði um 1,89% og Straumur-Burðarás hækkaði um 1,76%.

Teymi lækkaði um 0,41% og Glitnir lækkaði um 0,37%.

Gengi krónu styrktist um 1,29% og er 120,29 stig.