Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,6% og er 8.090 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nam 6,4 milljörðum króna.

Actavis Group hækkaði um 1,82%, Össur hækkaði um 0,92% og Mosaic Fashions hækkaði um 0,6%.

Atlantic Petroleum lækkaði um 10,16%, Flaga Group lækkaði um 1,46%, Alfesca lækkaði um 1,38%, Teymi hefur lækkað um 1,35%, Icelandair Group lækkaði um 1,24%.

Gengi krónu veiktist um 2,15% og er 114,4 stig við lok markaðar. Sérfræðingar á markaði segja að ástæðuna megi rekja til nýrrar aflaráðgjafar Hafró.

?Ef farið verður að aflaráðgjöf Hafró fyrir næsta fiskveiðiár gæti útflutningsverðmæti sjávarafurða minnkað um allt að 25 milljarða króna,? segir greiningardeild Glitnis.

Um þessa hröðu veikingu benda sérfræðingar á að krónan komi yfirleitt sterkari til baka.