Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 5,2% í dag og stóð við lok markaða í 798 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan lækkaði um 0,1% í gær en lækkaði jafnt og þétt í allan dag. OMXI6 vísitalan var sett á laggirnar um áramót og þá stillt á 1.000 stig.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 3,1% og stendur nú í 275 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en Straumur leiddi lækkanir dagsins og lækkaði um 19,3% og hefur því lækkað um 40,4% síðustu sjö viðskiptadaga en 71,2% síðustu fjórar vikur.

Tvenn félög, Century Aluminum og Marel hækkuðu lítillega eða um 1,9% og 0,2%.

Velta með hlutabréf var um 173 milljónir króna en þar af voru rúmar 103 milljónir með bréf í Straum.

Þá var velta fyrir rúmar 49 milljónir króna með bréf í Marel og tæpar 4 milljónir króna með bréf í Össur en minni velta var með bréf í öðrum félögum.

Velta með skuldabréf nam í dag tæpum 10,9 milljörðum króna.