Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,9% í dag og stóð við lok markaða í 355 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,8% í gær og hélt áfram að lækka strax við opnun í morgun en hafði um tíma lækkað um 2,5%.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga. Straumur leiddi lækkanir dagsins og hefur lækkað um 7,9%.

Velta með hlutabréf var rúmar 130 milljónir króna en þar af voru rúmar 110 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá var velta fyrir tæpar 105 milljónir króna með bréf í Össur og rúmar 19 milljónir króna með bréf í Marel.