Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,11% og er 6.474 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá M5. Veltan nemur 3.305 milljónum króna.

Mosaic Fashions hækkaði um 1,74%, Alfesca hækkaði um 0,62%, Exista hækkaði um 0,45%, Glitnir hækkaði um 0,44% og Landsbankinn hækkaði um 0,37%.

Flaga Group lækkaði um 4,69%, Atlantic Petroleum lækkaði 1,48%, Tryggingamiðstöðin lækkaði um 1,24%, Bakkavör Group lækkaði um 0,51% og Actavis Group lækkaði um 0,44%.

Gengi krónu styrktist um 0,46% og er 119 stig við lok markaðar.