Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,6% og er 5.203 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Veltan nam um fjórum milljörðum króna, þar af eru 1,2 milljarða króna utanþingsviðskipti með bréf Glitnis.

Össur [ OSSR ] hækkaði um 3,3%, Exista [ EXISTA ] hækkaði um 2%, Föroya banki [ FO-BANK ] hækkaði um 1,4%, Straumur [ STRB ] hækkaði um 0,7% og Kaupþing [ KAUP ] sömuleiðis.

Atlantic Airways [ FO-AIR ] lækkaði um 8,8%, Flaga Group [ FLAGA ] lækkaði um 3,4%, Icelandair Group [ ICEAIR ] lækkaði um 2,7%, Eik banki [ FO-EIK ]  lækkaði um 2,2% og Spron [ SPRON ] lækkaði um 0,8%.