Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,65% og er 8.552 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nam 13,3 milljörðum króna.

Eik banki hækkaði um 2,8%, Eimskip hækkaði um 2,24%, Atlantic Petroleum hækkaði um 2,18%, Föreya banki hækkaði um 1,96% og Landsbankinn hækkaði um 1,89%.

Century Aluminium lækkaði um 1,7% og 365 lækkaði um 1,24%.

Gengi krónu styrktist um 0,31% og er 116,2 við lok markaðar.