Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,17% og er 8.087 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nam 8,8 milljörðum króna.

Mosaic Fashions hækkaði um 1,19%, Exista hækkaði um 0,75%, Bakkavör Group hækkaði um 0,57% og Tryggingamiðstöðin hækkaði um 0,13%.

Altantic Petroleum lækkaði um 6,72%, Eimskip lækkaði um 1,55%, Össur lækkaði um 1,39%, 365 lækkaði um 0,8% og Alfecsa lækkaði um 0,79%.

Gengi krónu styrktist um 0,38% og er 114,7 stig.