Úrvalsvísitalan stóð í stað við lok markaða í dag eða í 644 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hafði þó um tíma lækkað um 0,7% en hækkaði á ný undir lok dags.Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,2% í gær og hefur nú lækkað um 10,5% það sem af er þessari viku.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Eimskip hækkaði mest félaga í dag eð aum 30,7%. Rétt er þó að taka fram að aðeins fóru fram ein viðskipti með bréf í félaginu fyrir 12 þúsund krónur í dag.

Heildarvelta með hlutabréf var í dag um 122 milljónir en þar munar mestu um 100 milljónir með bréf í Marel. Fyrir opnun markaða í morgun fóru fram stök viðskipti með bréf í félaginu fyrir 70 milljónir.

Þá er velta fyrir 7,4 milljónir í Icelandair Group, tæpar 7,3 milljónir með bréf í Össur en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.