Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,75% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 í 392 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 38,9% gær og stóð við lok markaða í 403 stigum. Þá hélt hún áfram að lækka strax við opnun markaða í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en Exista heldur áfram að lækka. Félagið lækkaði um 97% í gær og hefur það sem af er degi lækkað um 14,3%.

Í gær voru heimiluð viðskipta á ný með Exista og Straum í fyrsta sinn í rúma tvo mánuði, eða eftir að Fjármálaeftirlitið stöðvaði viðskipti með öll fjármálafyrirtæki í Kauphöllinni þann 6. Október s.l.

Straumur hefur lækkað um 1% í morgun.

Aðeins eitt félag, Bakkavör hefur hækkað í morgun en félagið hefur hækkað um 0,9%.

Það sem af er degi er heildarvelta með hlutabréf um 42 milljónir króna en þar af eru tæpar 32 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá er velta fyrir rúmar 5,5 milljónir króna með bréf í Straum og um 3,5 milljónir króna með bréf í Bakkavör.