Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,6% á síðustu sjö dögum og er 4.828 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Icelandic Group hefur hækkað um 50% á síðustu sjö dögum en unnið er að afskráningu félagsins, Nýherji hefur hækkað um 5,3%, Alfesca hefur hækkað um 2,2% og Össur hefur hækkað um 1,7%.

Century Aluminium hefur lækkað um 6,5% á síðustu sjö dögum, Atlantic Petroleum hefur lækkað um 6,1% og Teymi hefur lækkað um 4,6%.