Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að hækka vexti í 4,7% úr 4,6%, segir í tilkynningu frá sjóðnum. Vextir íbúðalána án uppgreiðslugjalds hækkar í 4,45% úr 4,35%.

Hækkun vaxtanna kemur í kjölfar útboðs sjóðsins að nafnvirði 3,1 milljarður króna, en Íbúðalánsjóður hækkaði vextina úr 4,15% í kjölfar samskonar útboðs í nóvember síðastliðnum.

?Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir því á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 22. desember, ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboði íbúðabréfa og uppgreiddra ÍLS-veðbréfa er 4,09%. Vaxtaálag vegna rekstrar, 0,15%, varasjóðs, 0,20%, og uppgreiðsluáhættu, 0,25%, samtals 0,60%," segir í tilkynningu Íbúðalánasjóðs.

Stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðar vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi.

Vegin heildarávöxtunar krafa tekinna tilboða í útboðinu með þóknun er 4,12%. Alls bárust tilboð að nafnvirði 9,5 milljarðar króna.