Íbúðalánasjóður hefur fallið frá hugmyndum um útgáfu á nýjum flokki íbúðabréfa á árinu 2009 og á fyrri hluta ársins 2010, en gerir ráð fyrir að endurskoða málið á síðari hluta ársins 2010.

Þetta kemur fram í tilkynningu sjóðsins til Kauphallarinnar en Íbúðalánasjóður hefur frá byrjun ársins 2009 verið með í skoðun útgáfu á nýjum flokki íbúðabréfa.

Í tilkynningu frá sjóðnum segir að frá ársbyrjun 2009 hafi ríkt umtalsverð óvissa varðandi útgáfu íbúðabréfa í tengslum við hugsanleg kaup Íbúðalánasjóðs á fasteignaveðlánasöfnum banka og sparisjóða. Þá er í fjárlögum ársins 2009 gert ráð fyrir heimild sjóðsins til að kaupa lánasöfn fyrir allt að 100 milljarða króna en einnig kom fram að sú tala gæti  orðið hærri eða lægri.

Kaup sjóðsins hafa, að svo komnu máli, verið mun lægri eða samtals um 14 milljarðar króna. Íbúðalánasjóður útilokar þó ekki að sú tala geti hækkað.

Þá kemur einnig fram að ríki hafi nokkur óvissa varðandi áhrif vanskil, frystingar lána og annarra greiðsluerfiðleikaúrræða á greiðsluflæði sjóðsins. Íbúðalánasjóður telur þó að þau áhrif séu ekki verið mikil enn sem komið er.

Í ljósi alls þessa hefur sjóðurinn sem fyrr segir fallið frá hugmyndum um útgáfur á nýjum flokki íbúðabréfa í bili.