Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 350,2 stig í nóvember sl. og hækkaði um 0,4% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur nú hækkað um 6,3% á milli ára en um 5,3% frá síðustu áramótum. Þá hefur vísitala íbúðavers ekki mælst yfir350 stig síðan í ágúst 2008.

Á myndinni hér að neðan má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin fimm ár. Eins og sjá má mælist íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu nú á svipuðu róli, að nafnvirði, og það var rétt fyrir hrun fjármálakerfisins haustið 2008. Vísitalan náði hámarki í ársbyrjun 2008 en hefur nú síðan þá lækkað um 2% föstu verðlagi. Mest lækkaði hún um 15,5% að raunvirði frá hámarkinu en það var í desember 2009. Síðan þá hefur íbúðaverð hækkað um 15,9%.

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 2% en síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 4,1%.

© vb.is (vb.is)